INVISALIGN

Tekur skemmri tíma

Sést mun minna

Ódýr lausn

Traust vara

HENTAR INVALISIGN ÞÉR?

Invisalign getur breytt sjálfsöryggi þínu og viðhorfi þínu til lífsins. Með Invisalign er ekkert stórmál að fá brosið sem þig hefur alltaf dreymt um. Invisalign meðferð hefur  nánast engin áhrif á þitt daglega líf.

Invisalign réttir tennur með nokkrum nánast ósýnilegum sérsmíðuðum skinnum sem auðvelt er að fjarlægja. Þú skiptir um skinnu á tveggja vikna fresti og tennurnar færast smátt og smátt saman eftir því sem vikurnar líða, þar til þær hafa náð ákjósanlegri stöðu.​

Skinnurnar eru þægilegar og þær sjást lítið. Hægt er að fjarlægja skinnurnar, svo Invisalign bætir bros þitt án þess að hafa áhrif á þitt daglega líf. Yfir 3 milljónir manna hafa nú þegar uppgötvað kosti Invisalign meðferðar.


Ertu reiðubúin(n) fyrir nýtt bros?

HVAÐ KOSTAR INVISALIGN?

Þegar öllu er á botninn hvolft þá snýst þetta ekki bara um útlitið. Þetta snýst um að gera eitthvað fyrir sjálfa(n) þig – svo þú getir verið eins og þú átt að þér að vera.

Við skiljum að verðið er mjög mikilvægur þáttur þessarar ákvörðunar. Eins og við allar tannréttingameðferðir er kostnaður við Invisalign einstaklingsbundinn og fer meðal annars eftir því hversu flókið vandamálið er og hversu lengi meðferðin þarf að standa. Þetta þýðir að þú munt ekki fá nákvæman kostnað uppgefinn fyrr en þú hefur samband við tannlæknastofu Krýnu. 

Almenna reglan er sú að kostnaðurinn er sambærilegur kostnaði við hefðbundnar fastar spangir. Söluaðili Invisalign er sá eini sem getur að fullu metið kostnaðinn fyrir þig, en verðið á Invisalign-meðferð er yfirleitt á bilinu ISK 475,000 – ISK 949,000. Ef aðeins er þörf á lágmarksréttingu getur verðið hins vegar verið frá ISK 396,000.

Til að fá áætlaðan kostnað fyrir Invisalign-meðferð uppgefinn skaltu hafa samband við tannlæknastofu Krýnu og panta tíma.

Viðtalstími í Invalisign er þér að kostnaðarlausu.

HAFA SAMBAND

Share by: