ALMENN ÞJÓNUSTA

Fyllingar

Amalgam:
Amalgamfyllingar, eða silfurfyllingar, voru notaðar í tannlækningum áratugum saman. Við hér hjá Krýnu höfum hætt notkun amalgams.

Plastfyllingar:
Plastfyllingar hafa að mestu leyti leyst amalgamfyllingar af hólmi. Plastfyllingar eru plastefni með íblönduðum fylliefnum sem auka núningsþol þeirra. Þær hafa lit tanna og þykja ákjósanlegar vegna útlitsins. Þær bindast einnig tannvefnum sem dregur úr brothættu.

Postulínsfyllingar:
Gripið er stundum til postulínsfyllinga þegar fylling er mjög stór og á henni hvílir mikið álag. Postulín er sterkara en plast og því eru þessar fyllingar oft endingarbetri.

 

Tannskemmdir

Segja má að tannskemmdir stafi af vexti og virkni baktería í munni. Til að bakteríurnar sem eru í munninum geti skaðað yfirborð tannanna þurfa kjöraðstæður að skapast fyrir þær. Í hvert skipti sem eitthvað matarkyns er sett í munninn lækkar sýrustigið í munninum og hættan á tannskemmdum eykst. Sykur og sæt matvæli eru óskaorkugjafi tannskemmdabakteríanna, en þó ekki sá eini. Allur matur getur valdið tannskemmdum ef bakeríur hafa fengið að þrífast óáreittar.

Hvað er til ráða?
Í munninum er innbyggt varnarkerfi sem hjálpar tönnunum í baráttunni við bakteríurnar.
Þegar tuggið er hreyfast vöðvarnir sem umlykja munnholið og hjálpa til við hreinsun þess. Einnig eykst munnvatnið þegar tuggið er og hjálpar það við hreinsun munnholsins auk þess sem það hækkar sýrustig munnsins og dregur þá úr áreiti frá bakteríunum á tannyfirborðið.

Þetta innbyggða varnarkerfi nægir þó ekki til að halda tannskemmdunum í skefjum. Eigandi tannanna þarf að leggja sitt að mörkum með því að:

  • Stilla millimálanarti í hóf
  • Lágmarka neyslu sætinda, sætra matvæla og drykkja
  • Þrífa tennur af nákvæmni að minnsta kosti tvisvar sinnum á dag.

 

Umhirða Tanna

Segja má að það sé góð regla að bursta tennur tvisvar á dag með flúortannkremi, að morgni eftir morgunverð og að kvöldi áður en farið er að sofa. Að kvöldi er mikilvægt að allir fletir tannanna séu hreinir, einnig fletirnir milli tanna, sem þarf að hreinsa með öðrum hætti en sjálfum tannburstanum. Best er að nota tannþráð og millitannabursta til þess.

 

Lýsing Tanna

Boðið er upp á tvær tegundir af lýsingu, heima og á stofu.

Lýsing heima

Búnar eru til mjúkar plastskinnur sem laga sig að tönnum lýsingarþega. Í skinnurnar er sett lýsingarefni. Mislangan tíma tekur að ná árangri og einnig sækist fólk eftir mismiklum árangri. Yfirleitt tekur ferlið sjö til tíu daga. Lýsingarþeginn þarf að vera með skinnuna í tvo til fjóra tíma á dag. Einnig er hægt að sofa með skinnuna þar sem efnið virkar eingöngu í fjóra tíma.

Lýsing framkvæmd á stofu

Lýsingarþegi þarf að ætla sér tvær klukkustundir í verkefnið. Tennur eru hreinsaðar og pússaðar en æskilegt er að tannhreinsun hafi verið gerð nokkrum dögum áður en lýst er. Hlífðarefni er sett á tannhold, lýsingarefnið borið á tennurnar og látið liggja á þeim í allt að 60 mínútum. Aferðin krefst ekki eftirmeðferðar fyrir sjúkling heima.

Aukaverkanir
Tennur geta orðið viðkvæmar eftir meðferð og meðan á henni stendur. Gott er að setja flúor á tennurnar eftir lýsingu.

Árangur lýsingar er háður lífstíl hvers og eins. Mikil kaffidrykkja og reykingar geta dregið úr árangri. Góð munnhirða er lykilatriði til árangurs.


BÓKA TÍMA

FAGURFRÆÐI Í TANNLÆKNINGUM

Lýsing tanna

Boðið er upp á tvær tegundir af lýsingu heima og á stofu.


Lýsing heima

Búnar eru til mjúkar plastskinnur sem laga sig að tönnum lýsingarþega. Í skinnurnar er sett lýsingarefni. Mislangan tíma tekur að ná árangri og einnig sækist fólk eftir mismiklum árangri. Yfirleitt tekur ferlið sjö til tíu daga. Lýsingarþeginn þarf að vera með skinnuna í tvo til fjóra tíma á dag. Einnig er hægt að sofa með skinnuna þar sem efnið virkar eingöngu í fjóra tíma.


Lýsing framkvæmd á stofu

Lýsingarþegi þarf að ætla sér tvær klukkustundir í verkefnið. Tennur eru hreinsaðar og pússaðar en æskilegt er að tannhreinsun hafi verið gerð nokkrum dögum áður en lýst er. Hlífðarefni er sett á tannhold, lýsingarefnið borið á tennurnar og látið liggja á þeim í 60 mínútur undir sérstöku ljósi. Aferðin krefst ekki eftirmeðferðar fyrir sjúkling heima.

Aukaverkanir
Tennur geta orðið viðkvæmar eftir meðferð og meðan á henni stendur. Gott er að setja flúor á tennurnar eftir lýsingu.

Árangur lýsingar er háður lífstíl hvers og eins. Mikil kaffidrykkja og reykingar geta dregið úr árangri.

Góð munnhirða er lykilatriði til árangurs.


Bóka tíma

ORTHOPAN RÖNTGENMYNDATÆKIÐ

Stafrænar Orthopan- og sneiðmyndir

Hjá Krýnu er orthopan röntgenmyndatæki ORTHOPHOS PLUS frá Sirona sem einnig gefur möguleika á sneiðmyndum.

Myndirnar eru á stafrænu formi sem gerir kleift að stækka, auka/minnka þéttleika og skerpu.


Smelltu hér til að sjá myndband


BÓKA TÍMA

TANNPLANTAR

Hvað eru tannplantar?

Það eru skrúfur gerðar úr titan málmi sem græddar eru í bein þar sem tannrót vantar (tönn hefur verið fjarlægð, orðið fyrir áverka ofl). Á tannplöntum má byggja tannkrónur, brýr eða jafnvel heila tanngarða. Með tannplöntum má festa gervitennur með smellum.

Hverjum hentar tannplantar?
Þeim sem misst hafa tönn eða tennur og hafa beinstuðning til að festa titanskrúfurnar. Best er að leita álits hjá sérfræðingi og fá úr því skorið hvort viðkomandi hefur möguleika á tannplantaígræðslu.


BÓKA TÍMA

RÓTFYLLING

Tennur eru flókin líffæri, gerðar úr glerjungi, tannbeini og taugavef.

Hlutverk glerjungs er að vernda undirliggjandi lög frá áreiti og skemmdum.
Tannbeinið er uppistöðuefni tannarinnar.
Innsta lag tannarinnar er tauga- og æðavefur. Hann skynjar sársauka, sem er varnarviðbragð tannarinnar við áreiti.

Markmið með rótfyllingu
er að lækna eða koma í veg fyrir sýkingu í tönn og kjálkabeini. Ef ekki er brugðist við sýkingu tannar getur skaðinn orðið óafturkræfur

Sársauki
Mikill sársauki (verkir) fylgja skemmdum á tauga- og æðavef tannar. Yfirleitt þarf að framkvæma rótfyllingu til að létta á sársaukanum. Með nútímatækni og deyfingum er aðfgerðin sjálf að öllu jöfnu ekki sársaukafull.

Að lokinni rótfyllingu
Tönnin getur verið viðkvæm um sinn eftir rótfyllingu. Ef sársauki helst lengur en í nokkra daga er rétt að hafa samband við tannlækninn. Þegar tönnin hefur jafnað sig og er orðin verkjalaus er rétt að setja krónu á tönnina því rótfyllt tönn verður stökk og því hætta á að hún geti brotnað illa og jafnvel eyðilagst.

Aðrar lausnir en rótfyllingar
Æskilegt er talið að reyna til hins ýtrasta að halda í eigin tennur. Ef ekki verður komist hjá því að fjarlægja tennur eða ef þær brotna í slysum er hægt að fylla upp skarðið með brú, tannplanta eða lausum pörtum.


BÓKA TÍMA